Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: matthildur valdimarsdóttir
  • Stađur: ísafjarđarbćr
  • Atvinna: stolt móđir,ţrćll heimilisins og nemi
  • Hjúskaparstađa: ég er allavega skotin í Inga Ţór

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, People who think outside the patterns are special! Funny Images, May the force be with you. Funny Images, Cowboy Henk Funny Images, Dumb girl poses Funny Images, Yeah, I'm old. Funny Images, Sad Book

Leikur dagsins

26. október 2007 klukkan 14:29

Jamm óbeisluð fegur í kveld í bíó, ég ætla að skella mér með Tinnu og skafta og öllum hinum þetta verður eitt stórt partý hvet alla til að skoða heimasíðu keppninnar obeislud.it.is GARGANDI SNILLD !!!!

hérna er hann Oddur man ekki hvað hann vann en glæsilegur fengur þessi drengur (er á lausu eftir ég best veit)

Svo er förinni ætlað á öldurhús bæjarins allavega er Tinnfríður með einhverjar meiningar um kveldið var eitthvað að tala um dans, ég veit ekki frúin með pínu verki eftir mrl síðan í gær ætli ég drekki ekki bara fullt af svona :





ég er semsagt búin að læra að setja inn myndir gaman gaman hérna koma nokkrar af litlu "englunum" mínum






sennilega það  besta sem hefur lent yfir þröskuldinn hjá mér :)



ble í bili

26. október 2007 klukkan 01:03

Vegna þrýstings verð ég víst að fokkings blogga hérna !!!! L

 

Segi svona, ætli ég vinni gleði og bjartsýnisverðlaunin í ár þau verða afhent í desember við hátíðlega athöfn í Háskólabíó, ég er allavega tilnefnd J

Ummmmm....

Ég hef allveg nóg að segja bara nenni því ekki ég skal hafa það stutt  og laggott

Skóli, skóli, skóli, vinna, vinna, vinna, börn, börn, börn and thats it !

Eins og þið kæru lesendur kannski finnið er pínu pirringur í gangi alltof mikið að gera kallinn ekki að hlýða mér ekki börnin heldur en samt sem áður funkera ég best undir akkúrat þessum aðstæðum eins fáránleg og það hljómar J

 

Ég er að fara í bíó á morgun á Óbeislaða fegurð (obeislud.it.is) allgjör snilld ég var svo heppin að vera viðstödd þennan viðburð eða þessa keppni og tengdó var stolt fjölskyldunnar algjör skvís og vann blessun frá pabba og nudd frá tengdarpabba J

 

Úff ég sit hérna að deyja úr harðsperrum (eða skrifar maður það svona hmm... )

ég var í MRL eða magi, rass, og læri og ég er sko með nóg af því öllu því miður L

en ekki lengi ef ég mæti í þessar þrælabúðir men o men ég var orðin eins og epli í framan másandi eins og svín á leiðinni til slátrunar hrikalegt !!!!

mætti samt voða kokhraust ætlaði sko að taka þetta í nefið mar massa þetta, en nei 

það gekk svona líka illa með fyrrgreindum afleiðingum að ég ætti að skammast mín, ég elska að láta pína mig þannig að ég ætla aftur J

 

nenni ekki að segja meir fúl pisst off þreytt kona hérna passið ykkur !!!!!

  
þetta er ég að keppa þegar ég er búin með 10 MRL tíma og knapinn minn Haraldur frá Gríshóli

úllala undrin gerast enn

14. júlí 2007 klukkan 03:21

Enn ein andvökunóttin gengin í garð ohhhhh.....
ég get svarið það ég þoli ekki hvað ég get vakað endalaust og nenni samt ekki að taka til sem by the way er ósanngjarnt að ég þurfi að gera, ég ætla að gerast uppfinningarsnillingur og verða fræg fyrir að finna upp sjálfhreinsandi heimili :) how do you like them apples ???

ég get ekki einusinn kennt Inga um þessar blessuðu vökur þar sem hann er hættur að hrjóta þessi elska eftir að ég píndi hann í hálskirtlatöku sem endaði með ósköpum, hann heimtaði að fara strax heim en vildi ekki betur til en að það leið yfir naglann á leiðinni heim og löggan og sjúkrabíll mættu á svæðið hahahah..... soldið fyndið eftirá en kellan fékk vægt taugaáfall á meðan þessu stóð.

allavega ég kíkti aðeins á langa og fékk mér smá (fullt)af kaffi og hitti Hjördísi, gisselu og ósk æskuvinkonur mínar og rifjaði upp gamalt og gott og var ákveðið að gera meira af því á morgun :) gaman af því.

En að aðalmálinu haldið ekki að hún Matthildur sé ekki að fara að gifta sig næsta sumar, kallinn búinn að fara á skeljarnar og allt hver hefði nú trúað þessu ? allavega ekki ég hahhahahahah...
ég ætlaði sko aldrei að gifta mig mér fannst það bara vitleysa ég ætti allt nema kitchen aid og ég var bara að spá í að kaupa mér hana sjálf :) eeeennnnnn... svo líða ár og við föttuðum að við erum bara betur sett gift en ekki enda rosa skotin í hvort öðru og ætlu að vera saman forever and a day :)

Annars allt í lukkunar velstandi ég með blæðandi magasár af stressi kallin orðin 40 á leiðinni á elliheimili og krakkarnir bíða eftir greiningu við ýmis hegðunarvandamálum gæti það verið betra hahahha.....

þetta var svefngalsablogg matthildar markar næsta útsending eftir ummm..... ár eða svo

tak tak eg kveðja á pólskur í dag og fara ad safna búmbu með að borða nammi

loksins loksins

21. maí 2007 klukkan 13:03
Jæja verð ég ekki að blogga smá JÞað ung stúlka sem er farin að leggja mig í einelti vegna þessa bloggleysis Hmmm..... hvar á ég að byrja við fjölskyldan erum á leiðinni í Stykkishólm næstu helgi og verðum þar í viku mmmmm.... ekkert nema æði afslöppun

gamla bænum

gamla bænum mínum Jmínum J Svo er smá slúður : Heyrst hefur að margar gróur á leiti búi í ísafjarðarbæ og safnist saman í reykfylltum kompum og einhver skortur er á krassandi sögum þannig að þær búa til eitthvað særandi um fólk J  Ekki meira af slúðri aftur á þessari síðu takk !!!!!! En verð ég ekki að setja inn myndir af ungunum mínum þessum yndislegu mannverum sem fylla líf mitt af endalausri hamingju og tilgangi JSóley ebba              Kristján Logi         Aron Máni           Evíta Cesil  Bara sætustu og bestu börn í heimi    Jæja stína stuð bloggið er komið komin tími til að hætta eineltinu áður en ég leita til regnbogabarna J

feitasta blogg seinni tíma !!!!!

15. mars 2007 klukkan 11:15

Jæja þá er nú komið að einu feitu bloggi fullt búið að ske síðan síðast sko !!!!

Allavega er ég búin að eiga barnið og það gekk svona æðislega illa að ég er allveg núna búin að fatta að mig langar ekki að eiga fleiri börn, talandi um að vera sein að fatta hahahahaha.....

 En þannig var að ég missti vatnið þann 12 feb mánuð fyrir settan tíma og ekkert annað í stöðiunni en að hringja á ambulansinn, þeir voru nú ekkert að drífa sig og beið ég í svona 3 korter og tilkynnti þeim þegar þeir komu að ég var guðslifandi fegin að vera ekki dauðvona því þá væri ég sennilega löngu dauð. Og þeir báru mig niður fjólubláir í framan, nú veit ég hvernig er að vera 300 kíló þeir litu allavega út fyrir að vera að bera þvílikt hlass hahahah......

  Allavega upp á spítala fórum við eftir að Íris kom hingað syngjandi og trallandi beint af tjúttinu og passaði þangað til einhver annar tók við, svo þurfti ég að liggja á spítalanum í 2 daga og mátti ekki hreyfa mig það er án efa það erfiðasta sem ég geri að vera kjurr og gera ekkert ég hélt ég mundi hreinlega springa úr leiðindum !!!!!!

Svo var ég sett á stað um morguninn 13 feb og ég fékk fullt af hríðum og almennum leiðindum og ekkert gekk þannig að kl. 1 um nóttina er ákveðið að fara í keisara og viti menn lyftan á spítalanum biluð og skurðstofan niðri týpiskt ég að lenda í þessu þá var um tvennt að velja halda áfram að deyja eða labba niður með þvagleggin þið vitið hvar og nokkrar slöngur í hendinni og ég valdi að labba svo var ég skorin og lyftan okkurtil mikillar ánængju ennþá biluð og við vorum eins og iila gerðir hlutir að spá hvernig ætti að koma mér upp þá var hringt á 112 og sjúkrabíll fenginn upp á spítala og þessar elskur á bílnum þurftu að bera mig upp, þá er þessari skemmtisögu lokið.

      En litla frekjudósin er komin með nafn og varð Evita Cesil fyrir valinu og passar þessum litla skörung vel.

   En þessa stundina eru allir veikir á heimilinu og eintómt volæði í gangi hor og hnerr ömurlegt.

En ég er að spá í að hafa þetta ekkert lengra í bili en ég er að vinna í að koma inn myndum ég lofa að reyna mitt besta.

 

Að lokum vil ég votta samúð mína til þeirra sem sem eru í sárum vegna þeirra hrikalegu atburða sem áttu sér stað hérna fyrir vestan. Þetta er enn ein áminningin að lífið er ekki sjálfsagt við verðum að muna að elska, virða náungann og nota tímann meðan hann gefst.

 

Kv matta ofurbloggarakvendi  

hahahhah

24. janúar 2007 klukkan 11:31
Þetta er með því fyndnara sem ég hef lesið lengi kannski útaf því að maður dettur stundum í þennan gír, ég stal þessu hjá Önnsku vinkonu takk Annska

Hlutir sem aðeins móðir getur kennt
Móðir mín kenndi mér EFTIRVÆNTINGU….….
"Bíddu bara þangað til pabbi þinn kemur heim.”

Móðir mín kenndi mér að ÞIGGJA….
"Nú færðu að kenna á því þegar við komum heim!"

Móðir mín kenndi mér að TAKA ÁSKORUN…
"Hvað varstu að hugsa? Svaraðu mér þegar ég tala við þig…Ekki brúka munn!"

Móðir mín kenndi mér RÖKFÆRSLU...
"Ef þú dettur úr rólunni og hálsbrýtur þig, ferðu ekki í búðina með mér."

Móðir mín kenndi mér LÆKNISFRÆÐI ...
"Ef þú hættir ekki að gera þig rangeygðan, þá festast í þér augun svoleiðis."

Móðir mín kenndi mér FRAMSÝNI...
"Ef þú nærð ekki stafsetningarprófinu, færðu aldrei góða vinnu."

Móðir mín kenndi mér að vera SKYGGN...
"Farðu í peysuna, heldurðu að ég viti ekki þegar þér er kalt?"

Móðir mín kenndi mér HÚMOR...
"Þegar þessi sláttuvél klippir af þér tærnar skaltu ekki koma hlaupandi til mín."

Móðir mín kenndi mér að verða FULLORÐINN...
"Ef þú borðar ekki grænmetið þitt, verðurðu aldrei stór."

Móðir mín kenndi mér KYNLÍF...
"Hvernig heldurðu að þú hafir orðið til?"

Móðir mín kenndi mér ERFÐAFRÆÐI ...
"Þú ert alveg eins og pabbi þinn."

Móðir mín kenndi mér um UPPRUNA MINN ...
"Heldurðu að þú hafir fæðst í fjósi?"

Móðir mín kenndi mér VISKU ...
"Þegar þú kemst á minn aldur muntu skilja þetta."

Móðir mín kenndi mér... RÉTTLÆTI...
"Þegar þú eignast börn vona ég að þau verði alveg eins og þú. Þá sérðu hvernig það er.

ALLT AĐ SKE !!!!!!

24. janúar 2007 klukkan 03:02

Jamm allt að gerast og það versta er að ég er síðust til að fatta það, “korter” í það að ég eignist barn og ég á eftir að gera allt reddí kaupa vagn(auglýsi hér með eftir slíkum), kaupa föt, stækka svefnherbergið mitt, vinna í lottó, svo eins og alþjóð veit settist mín á skólabekk í byrjun árs sem er svo ljómandi leiðinlega skemmtilegt að læra um heilablað, brocka-svæðið,atferliskenningu og hugræna atferlismeðferð hver vill ekki læra það ég spyr J Svo má nú ekki gleyma börnum og búi ég auglýsi líka eftir 5 auka klukkutímum í sóahringinn ef einhver lúrir á þeim.

  En svo ætla ég svona í byrjun árs að koma með smá annál fyrir þá sem ekki eru í kallfæri Sóley Ebba er að æfa píanó,ballett og fimleika algjör snilli og er hægt og rólega að breytast í svaka skvísu, Kristján Logi hvað getur maður sagt er og verður Kristján Logi geimgengill alltof klár miðað við aldur og hugmyndarflug, og framkvæmir það sem honum dettur í hug (og finnst það allt í lagi), og svo lilli litli Aron Máni duglegur drengur er farin að taka bróður sinn til fyrirmyndar (því miður) uppátækin allveg ótrúleg, en bara gaman smá krydd í annars myglaðan veruleikann J

  Þar hafiði það allt í ljómandi velstandi nema það að ég er allveg hissa á því að fréttin um hvalrekann sé ekki komin í bb J mér líður allavega eins og hval og yrði ekkert bit ef fólk mundi ruglast þegar það sér mig J

 Jæja ætla að kveðja að sinni næsta blogg eftir ár J

 

Ble í bili

BARA FYNDIĐ (og soldiđ satt)

10. janúar 2007 klukkan 00:26

Ég ávað að stela þessu af henni Tinnslu minni vinkonu og svilkonu og konu

Jæja stelpur, það er sko komin tími til að fara koma sér heim af djamminu þegar ....

 

  • Þú hefur algjörlega enga hugmynd um hvar skórnir þínir eru
  • Þú  varðst að fá einhvern inni á klósetti til að koma og hjálpa þér að tosa upp buxurnar og hjálpa þér af setunni
  • Þig langar alltíeinu rosalega til að lemja einhvern
  • Síðast þegar þu þurftir á klóið sástu að þú leyst meir út eins og einhver úr hryllingsbúðinni frekar en gyðjan sem þú varst fyrir nokkrum klukkustundum síðan
  • Klukkan er 5.00, nú á að fara heim.  Þú misstir hlöllann þinn í gólfið en tekur hann upp aftur og heldur áfram að borða
  • Þú ferð að gráta
  • Það eru minna en þrír klukkutímar í það að þú átt að vera mætt í vinnu
  • Þú fannst dýpri hliðina á fyrirtækislúðanum
  • Maður sem þú ert að daðra við... á fullu, var kennarinn þinn í fimmta bekk
  • Þörfin fyrir að byrja týna af þér fötin, klifra uppá borð og syngja er orðin furðulega yfirþyrmandi
  • Þú ert búin að gleyma hvar þú átt heima
  • Þú ert komin með dimma vískírödd af öllum sígarettunum sem þú hefur reykt í kvöld af því (eins og þú ert búin að segja 20 sinnum) þú reykir bara á fylleríum.
  • Þú öskrar á barþjónnin af því þú sakanr hann um að hafa gefið þér hreint gos í glasið, en það er bara af því þú finnur ekki lengur bragðið af vodkanu eða gininu
  • Þú heldur að þú sért komin í rúmið en koddinn þinn minnir furðulega mikið á pizzu
  • Þú byrjar öll samtöl með "ekki taka þetta illa upp en..."
  • Þú fattar ekki að klósettlokið er niðri þegar þú sest á það
  • Faðmlögin þín og knús fer helst að minna glímuleik með tosum niður andstæðingin taktík
  • Þú ert svo þreytt að þú vilt bara setja beint á stéttina, ( og hví ekki!)
  • Þú sýnir vinum að stelpur geta alveg pissað standandi ef þeim virkilega langar
  • Þú byrjar að kela við menn frá miðausturlöndum á miðju dansgólfi :!:

su

27. júní 2006 klukkan 15:03

Jæja verð ég ekki að segja eitthvað fyrst ég var að byrja á þessu.  Við fórum vestfjarðahringinn á helginni það var bara gaman, látrabjarg, rauðisandur, flókalundur, og breiðavík þar sem við gistum, ótrúlega næs svona sveitó andrúmsloft ekkert sjónvarp ekkert útvarp ekkert gsm samband ekki neitt ég var bara hissa að það skildi vera rafmagn :) en rosa gott að hlað batteriin á 
 hjara veraldar krakkarnir voru samt með einhver fráhvarfseinkenni frá tækninni :)
en nú er mar bara komin heim að takast á við dags dagleg skemmtilegheit var að byrja að vinna aftur eftir slysið loksins, loksins þetta var bara komið gott af heimahangsi :)  allaavega ef einhver þráir að verða þunglyndur þá er uppskriftin að hanga heima í 7-8 mánuði og mega ekkert gera:) hlakka rosalega til sumarsins sem eftir er ferðalög hingað og þangað, sumarbústað á geysi og fljótavík á hornströndum  og kannski maður skelli sér eitthvað út líka, er samt að stefna að því að fara til kanarí um jól og áramót með æðislegu fólki.

well komið gott for now ég hlít að fá aðra munnræpu síðar

ble ble

seint fara sumir ađ sofa en sofna ţó :)

14. júní 2006 klukkan 03:33
Já þetta eru orð að sönnu!!!
logi geimgengill er duglegur og ég er voða ánægð með það að eiga duglean strák en hann má allveg vera duglegur til svona mestalagi 9 en til 10 11 eða 12 er of mikið af því góða :) en allavega ég er að komast inn í heim tækninnar smátt og smátt farin að blogga og allt svo verð ég örugglega að fara í nám til að læra að setja myndir hérna inn :) 
strákarnir voru að koma heim í dag eftir nokkurra dag fjarveru "pabbavika" ekki allir jafn ánægðir með þá heimkomu Sóley sæta er að taka svona forskot á gelgjuna og er eins og versti unglingur þegar kemur að strákunum lætur allt sem þeir gera og segja og fara í taugarnar á sér, þannig að það eru stöku öskur sem hljóma svo "yndislega" um húsið tóm gleði og hamingja:)

En samt sem áður góður dagur vinna á langa, elda mat, taka til, fá börnin heim var farin að sakna þeirra frekar mikið :(
Það er allveg sama hvað maður þráir að komast í smá pásu frá öllu saman maður er farin að sakna barnanna eftir 1 minútu.

 en ekki meir áður en ég klára bullkvótann fyrir árið :)
 
goodbye for now i´ll be back with more useless information

Könnun

á ađ far til útlanda í ár ??????

Auglýsing